Ég viðurkenni framhjáhald!

Það er stór undarleg tilfinning að halda með einu liði, sem í mínu tilfellir er Man Utd. En hvetja samt lið eins og Liverpool til dáða þegar maður situr í besta sætinu fyrir framan SÝN. Þetta minnir mig á Egils Gull auglýsinguna þar sem talað er um að halda fram hjá, Barcelona vs Che í síðustu rimmu þeirra í Meistaradeildinni. Þar sem Eiðurs-menn eru búnir að skipta yfir í Barca frá Che. Þannig leið mér í kvöld. Nánast eins og ég væri að halda fram hjá Man Utd, sem ég er búinn að halda með frá því ég var 4 ára.

Merkilegt hvað Liverpool fær mann til að hrífast með og maður missir sig í því að mæra þá til helvítis. Mikið afskaplega þarf ég að hvetja Utd á morgun. Bara svo ég geti horfst í augu við hvíta Utd letrið á treflinum mínum. Tala nú ekki um Utd. te bollann minn.

Ég vona bara svo sannarlega að Man Utd og Liverpool spili til úrslita í Aþenu. Þá getur hver manneskja séð að þetta litla hliðarskref var bara eitthvað stundarbrjálæði og að ást mín á Man Utd verði aldrei haggað. Þetta var bara eitthvað tilfinningalegt ójafnvægi! Þið verðið að trúa mér.

Koma svo Man U.....klárum AC Milan á morgun. GERIÐ ÞAÐ FYRIR SAMVISKU MÍNA!


mbl.is Liverpool í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Einar Matthías Kristjánsson

(moggalesari)

Drengur í guðs bænum vertu sterkur, játaðu þetta fyrir þér og komdu út úr skápnum með þetta.............þú er POOLARI

 og í telefni af þessum pósti þínum er þér svo boðið í jarðarförina mína ef Liverpool fær Utd í úrslitum........ég mun ekki höndla þann leik ;)

p.s. gaman að sjá svona frá Utd mönnum (ekki á færi allra...og öfugt ;) 

Einar Matthías Kristjánsson, 2.5.2007 kl. 01:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Raggi

Höfundur

Raggi
Raggi
Ég er nú hérna bara til að geta tekið þátt í umræðunni, án þess þó að þurfa eiga fyrsta orðið.
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (1.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 22
  • Frá upphafi: 221

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 22
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband